Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynninguum dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Einu breytingarnar að þessusinni eru í II. kafla vaxtatilkynningarinnar þar sem vextir verðtryggðra lána lækkaúr 5,4% í 4,2%. Ástæða þessarar miklu lækkunar má rekja til nýrra íbúðalánabanka og sparisjóða sem allir bjóða 4,2% vísitölubundna langtímavexti. Aðrirþættir vaxtatilkynningarinnar breytast ekki frá fyrri mánuði.
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum
ATH: Þessi grein er frá 27. september 2004 og er því orðin meira en 5 ára gömul.