Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Að þessu sinni eru hvorki breytingar á almennum vöxtum verðtryggðra né óverðtryggðra lána. Breytingar eru hins vegar á dráttarvöxtum peningakrafna í erlendri mynt. Dráttarvextir peningakrafna í Bandaríkjadölum hækka um 0,5% og eru 7,0% en dráttarvextir peningakrafna í Sterlingspundum lækka um 0,5% og eru 7,5%.
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum
ATH: Þessi grein er frá 26. september 2005 og er því orðin meira en 5 ára gömul.