Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody‘s breytti í dag horfum fyrir Baa3 lánshæfiseinkunnir Ríkissjóðs Íslands, í neikvæðar úr stöðugum, vegna þeirrar óvissu sem ríkir um erlenda lausafjárstöðu þjóðarbúsins. Horfum fyrir Baa2 þak á erlendar langtímaskuldbindingar og Baa3 þak á erlendar skammtímaskuldbindingar var einnig breytt í neikvæðar úr stöðugum.
Fréttina má nálgast hér.