Fara beint í Meginmál

Ný rannsóknarritgerð um vaxtaákvarðanir á Íslandi 29. júlí 2026

Seðlabanki Íslands hefur gefið út rannsóknarritgerðina „Too Little, Too Late? Testing The Optimality of Monetary Policy in Iceland“ eftir Birtu B. Haraldsdóttur og Bjarna G. Einarsson, hagfræðinga á sviði hagfræði og peningastefnu.

Í greininni er tölfræðilegum aðferðum beitt til að meta hvort ákvarðanir í peningastefnu á Íslandi hafi verið þær hagkvæmustu. Aðferðin byggir á tveimur nægjanlegum reiknihendingum (sufficient statistics): (1) spám um hagstærðir í markmiðsfalli peningastefnunnar og (2) viðbragðsföllum þessara hagstærða við peningastefnuskellum. Vegið margfeldi þessara tveggja stærða myndar stigul (gradient) tapfalls peningastefnunefndarinnar. Út frá þessum stigli er reiknuð Optimal Policy Perturbation (OPP)-stærðin, sem hægt er að nota til að prófa hvort ákvarðanir um peningastefnu víki frá því sem er hagkvæmast hverju sinni. Niðurstöðurnar benda til þess að meginvextir Seðlabanka Íslands hafi að jafnaði verið ákveðnir of lágir á undanförnum tveimur áratugum. Jafnframt finnast tvö tímabil þar sem peningastefnan vék með marktækum hætti frá hagkvæmustu stefnu: annars vegar í aðdraganda alþjóðlegu fjármálakreppunnar og hins vegar í kjölfar COVID-19 heimsfaraldursins.

Sjá ritið hér:

Sjá fleiri rannsóknarritgerðir hér: