Fara beint í Meginmál

Fjármálastöðugleiki 2026/2 23. september 2026

Ritið Fjármálastöðugleiki 2026/2 hefur verið birt á vef Seðlabanka Íslands. Í Fjármálastöðugleika er tvisvar á ári birt yfirlit yfir stöðu fjármálakerfisins, þ.e. um styrk þess og hugsanlega veikleika og áhættu sem því kann að vera búin bæði af þjóðhagslegum og rekstrarlegum toga. Í ritinu greinir Seðlabankinn frá því hvernig hann vinnur að verkefnum sem varða virkt og öruggt fjármálakerfi.

Yfirlýsing fjármálstöðugleikanefndar í hnotskurn

Til að viðhalda viðnámsþrótti bankanna hefur fjármálastöðugleikanefnd ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5%

__

Vefútsending

Vefútsending vegna yfirlýsingar fjármálastöðugleikanefndar og útgáfu Fjármálastöðugleika

Tengt efni

Í hnotskurn

Alþjóðapólitísk áhætta er mikil og horfur í efnahagsmálum á heimsvísu eru óvissar. Hrávöruverð hefur hækkað og flökt aukist. Seðlabankar nokkurra helstu iðnríkja hafa hækkað vexti sína og væntingar eru um frekari hækkanir. Verð á erlendum eignamörkuðum er almennt hátt sem endurspeglar áhættusækni og miklar væntingar fjárfesta. Vaxandi efasemdir um sjálfbærni opinberra fjármála í ýmsum löndum og mikil fjárþörf vegna fjárfestinga í gervigreind hafa leitt til hækkunar á ávöxtunarkröfu langra ríkisverðbréfa í Bandaríkjunum og víðar. Ávöxtunarkrafa langra ríkisverðbréfa hérlendis hefur hins vegar lítið breyst. Breytt umhverfi alþjóðaviðskipta, hækkun vaxta og sviptingar á erlendum mörkuðum gætu dregið úr efnahagsumsvifum og grafið undan fjármálastöðugleika hér á landi.

Mikilvægt er að styrkja viðnámsþrótt kerfislega mikilvægra innviða og tryggja fjölbreyttar og traustar varaleiðir. Hröð þróun í gervigreind eykur netáhættu í fjármálakerfinu. Hún getur aukið hraða, umfang og flækjustig netárása, gert fleiri aðilum kleift að gera háþróaðar netárásir og stytt tímann sem gefst til varna og viðbragða. Ein af grunnforsendum fjármálastöðugleika er að innviðir sem gegna lykilhlutverki í nauðsynlegri fjármálaþjónustu virki og geti staðið af sér alvarlegar rekstrartruflanir. Breytingar í tækni og innviðum þýða jafnframt að viðbúnaður fjármálakerfisins verður að þróast í takt við breyttar aðstæður.

Raunverð íbúða hefur lækkað að undanförnu, framboð aukist og velta á íbúðamarkaði minnkað. Fjöldi kaupsamninga sýnir þó að markaðurinn er virkur og að hlutdeild kaupenda fyrstu fasteignar er í hærra lagi. Langur birgðatími og háir vextir reyna á fjárhagsstöðu fyrirtækja í byggingariðnaði. Lánveitingar viðskiptabanka til byggingarstarfsemi hafa vaxið hratt og kerfisáhætta aukist. Vanskilahlutfall hefur hækkað en fjárhagserfiðleikar eru ekki útbreiddir enn sem komið er.

Staða heimila, fyrirtækja og banka er góð á heildina litið. Kerfislega mikilvægir bankar hafa mikinn viðnámsþrótt og arðsemi þeirra er góð. Skuldir heimila og fyrirtækja í hlutfalli við landsframleiðslu eru lágar í sögulegum og alþjóðlegum samanburði. Ótvíræð merki hafa ekki komið fram um almennan greiðsluvanda hjá heimilum og fyrirtækjum og vanskilahlutföll eru lág. Haldist vextir háir til lengri tíma og verðbólga þrálát kann að reyna á seiglu heimila og fyrirtækja. Sterk staða þjóðarbúsins og rúmur gjaldeyrisvaraforði auka getu hagkerfisins til að takast á við áföll.

Rammagreinar

Í ritinu Fjármálastöðugleiki 2026/2 má finna eftirfarandi þrjár rammagreinar auk þess sem hægt er að skoða yfirlit yfir áður útgefnar rammagreinar.

RammagreinBls.

Vaxtaálag á erlendar útgáfur bankanna

38

Kerfisáhætta og skörun eignasafna lífeyrissjóða

41

Hlutverk stöðugleikamynta í fjármálakerfinu

45