Seðlabankinn hækkar vexti í 8,00%
Vefútsending
Vefútsending vegna yfirlýsingar peningastefnunefndar og útgáfu Peningamála.
Tengt efni
Í hnotskurn
Hagvöxtur í helstu viðskiptalöndum var að meðaltali 1,6% á fyrsta ársfjórðungi og virðast efnahagsumsvif hafa haldið ágætlega velli það sem af er sumri. Alþjóðlegar hagvaxtarhorfur eru áþekkar og talið var í vor og spáð er 1,5% hagvexti í ár. Verðbólga í viðskiptalöndum Íslands jókst töluvert í kjölfar hækkunar olíu- og hrávöruverðs vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum en áfram er gert ráð fyrir að áhrifin verði að mestu tímabundin.
Landsframleiðsla hér á landi jókst um 2,7% á fyrsta fjórðungi ársins sem var í samræmi við það sem gert var ráð fyrir í maíspá Peningamála. Hins vegar er talið að hagvöxtur á öðrum fjórðungi hafi verið minni en spáð var þar sem einkaneysla virðist hafa gefið meira eftir en gert var ráð fyrir. Útlit er jafnframt fyrir minni útflutning sjávarafurða í ár en á móti vega meiri útflutningstekjur af starfsemi gagnavera. Nú er talið að hagvöxtur verði 1,4% í ár eða 0,2 prósentum minni en spáð var í maí. Búist er við að hagvöxtur aukist í 1,9% á næsta ári og 2,6% árið 2028.
Flestir mælikvarðar benda til þess að áfram hafi slaknað á vinnumarkaði. Launafólki hefur fjölgað lítillega milli ára en hlutfall lausra starfa af fjölda atvinnulausra hefur lækkað áfram og atvinnuleysi þokast upp. Atvinnuhorfur eru lakar næsta misserið en spáin gerir ráð fyrir að störfum og heildarvinnustundum fjölgi á næstu tveimur árum. Samkvæmt spánni er gert ráð fyrir að slaki í þjóðarbúinu verði tæplega 1% af framleiðslugetu á þessu ári en taki að minnka er líður á spátímann.
Verðbólga var að meðaltali 5,2% á öðrum ársfjórðungi en í maí var spáð að hún yrði 5%. Hún jókst lítillega í júlí og mældist 5,3%. Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar haldist í um 4,2% frá því í vor. Verðbólguvæntingar markaðsaðila og fyrirtækja til skamms tíma nema 3,5- 4% en heimili búast við að verðbólga verði þrálátari. Lakari upphafsstaða veldur því að búist er við að verðbólga verði heldur meiri á þessu ári en talið var í maí en mat á undirliggjandi
verðbólguþróun hefur lítið breyst. Áfram er búist við að verðbólga minnki tiltölulega hratt þegar kemur fram á næsta ár og verði komin í markmið á fyrri hluta árs 2028.
Óvissa um alþjóðlegar efnahagshorfur er sem fyrr mikil og mun efnahagsframvindan að miklu leyti ráðast af þróun mála í stríðsátökum í Mið-Austurlöndum og Úkraínu. Einnig ríkir enn
óvissa um hvernig viðskiptadeilu Bandaríkjanna og annarra ríkja vindur fram. Þá er óvíst hver framvindan verður á innlendum vinnumarkaði þar sem útlit er fyrir að endurskoðunarákvæði
kjarasamninga muni virkjast í lok ágúst. Ef annarrar umferðar áhrif af hækkun olíu- og hrávöruverðs verða meiri en hingað til gæti það leitt til þrálátari verðbólgu en ella. Hins vegar gæti vaxandi framleiðsluslaki í þjóðarbúinu leitt til enn hraðari hjöðnunar verðbólgu á seinni hluta spátímans.