Fara beint í Meginmál
viðburðir sí
23. september 2026
15:00
Seðlabanki Íslands, Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Málstofa: Too little, too late? Testing the optimality of monetary policy in Iceland
Bjarni G. Einarsson og Birta Björk Haraldsdóttir
Bjarni G. Einarsson hagfræðingur á sviðið hagfræði og peningastefnu Seðlabankans kynnir nýlega rannsókn sem hann vann ásamt Birtu Björk Haraldsdóttur. Titill rannsóknarinnar er „Too little, too late? Testing the optimality of monetary policy in Iceland.“ Rannsóknarritgerðin hefur verið birt sem Working paper 101 á heimasíðu Seðlabankans. Ágrip: Í greininni er tölfræðilegum aðferðum beitt til að meta hvort ákvarðanir í peningastefnu á Íslandi hafi verið þær hagkvæmustu. Aðferðin byggir á tveimur nægjanlegum reiknihendingum (sufficient statistics): (1) spám um hagstærðir í markmiðsfalli peningastefnunnar og (2) viðbragðsföllum þessara hagstærða við peningastefnuskellum. Vegið margfeldi þessara tveggja stærða myndar stigul (gradient) tapfalls peningastefnunefndarinnar. Út frá þessum stigli er reiknuð Optimal Policy Perturbation (OPP)-stærðin, sem hægt er að nota til að prófa hvort ákvarðanir um peningastefnu víki frá því sem er hagkvæmast hverju sinni. Niðurstöðurnar benda til þess að meginvextir Seðlabanka Íslands hafi að jafnaði verið ákveðnir of lágir á undanförnum tveimur áratugum. Jafnframt finnast tvö tímabil þar sem peningastefnan vék með marktækum hætti frá hagkvæmustu stefnu: annars vegar í aðdraganda alþjóðlegu fjármálakreppunnar og hins vegar í kjölfar COVID-19 heimsfaraldursins.
Næstu dagsetningar: „Viðburðir sí“
Bæta öllu í dagatal
Dagsetning Titill Lýsing Aðgerðir
23. september 2026 Málstofa: Too little, too late? Testing the optimality of monetary policy in Iceland
Bæta í dagatal
20. október 2026 Málstofa: It's complicated: The impact of wages on inflation
Bæta í dagatal