Til að mæta óvæntum útgjöldum er mikilvægt að eiga varasjóð. Öruggasta sparnaðarleiðin er að leggja fjármuni inn á bankareikninga en þeir hafa alla jafna lægri ávöxtun en aðrar sparnaðarleiðir s.s. verðbréfasjóðir eða verðbréf. Verðbréfaviðskiptum getur fylgt áhætta sem mikilvægt er að þekkja. Bönkum, verðbréfafyrirtækjum og rekstraraðilum sjóða, sem veita fjárfestingarráðgjöf og sinna eignastýringu, ber skylda til að meta fjárfesta t.d. kanna fjárhagsstöðu, þekkingu og reynslu viðskiptavinar af verðbréfaviðskiptum áður en þjónustan er veitt.
Neytendafræðsla um PRIIPS
Hvað eru pakkaðar fjárfestingarafurðir og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta?
Pakkaðar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta (PRIP)1 og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir,2 eða PRIIPs,3 eru mikilvægur hluti markaðar með fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta. PRIIPs ná yfir fjölbreytt úrval fjárfestingarafurða sem samanlagt mynda markað í Evrópu sem nemur allt að 10 billjónum evra. Það jafngildir um 1.366 milljörðum íslenskra króna miðað við viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands 12. nóvember 2026, þegar ein evra jafngilti 136,60 krónum.
Dæmi um PRIIPS eru:
- verðbréfasjóðir, sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta, ávöxtunarleiðir séreignarsparnaðar og lífeyristryggingasamningar
Þrátt fyrir mögulegan ávinning þeirra fyrir almenna fjárfesta eru afurðirnar oft flóknar og getur verið erfitt að skilja þær. Upplýsingarnar sem fjármálafyrirtæki veita fjárfestum við sölu þessara afurða geta verið óþarflega flóknar. Þær innihalda oft mikið af sérfræðihugtökum og geta verið erfiðar í notkun þegar bera á saman ólíkar fjárfestingarafurðir. Þar sem þau fyrirtæki sem selja slíkar afurðir koma oft einnig að ráðgjöf til fjárfesta geta hagsmunaárekstrar skapast, sem getur leitt til þess að ráðgjöfin sé ekki endilega aðeins í þágu fjárfestisins.
Til að bregðast við framangreindum annmörkum samþykkti Evrópusambandið PRIIPs reglugerðina, sem leggur skyldur á þá sem framleiða eða selja fjárfestingarafurðir að afhenda fjárfestum lykilupplýsingaskjöl (e. Key Information Documents – KIDs).
Lög nr. 55/2021 um lykilupplýsingaskjöl vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta innleiða PRIIPs reglugerðina í íslenskan rétt. Markmið laganna er að gera almennum fjárfestum kleift að skilja og bera saman helstu eiginleika pakkaðra og vátryggingatengdra fjárfestingarafurða og meðfylgjandi áhættu. Lögin gilda meðal annars um framleiðendur slíkra afurða og aðila sem veita ráðgjöf um eða selja þær.
Hvernig á að lesa úr lykilupplýsingaskjali?
2. Lykilupplýsingaskjal kemur ekki í stað, útboðslýsingar, skilmála eða annarra samningsgagna. Það er hins vegar mikilvægt fyrsta skref fyrir neytanda sem vill átta sig á því hvað felst í afurðinni, hvaða áhætta fylgir henni, hvaða kostnaður fellur til og hvernig hún ber sig saman við aðrar fjárfestingarafurðir.
Lykilupplýsingaskjöl eru aðeins þrjár blaðsíður, fylgja sérstöku sniðmáti og veita skýrar upplýsingar um fjárfestingarafurðina. Þeim er skipt niður í eftirfarandi kafla:
1. Almennar upplýsingar
Athugaðu heiti afurðarinnar, hvaða aðilar standa að henni. Útgáfudagsetning lykilupplýsingaskjalsins ætti að vera innan 12 mánaða gömul. Gakktu úr skugga um að þú sért að lesa nýjustu útgáfu skjalsins.
2. Hvers konar afurð er þetta?
Kannaðu hvernig afurð þetta er, í hverju hún fjárfestir, markmið og helstu eiginleika hennar, undirliggjandi eignir, fjárfestingarstefnu, gildistíma eða líftíma og fyrir hvaða markhóp og tegundir fjárfesta hún er ætluð.
Spurðu þig hvort þú skiljir hvernig afurðin getur skilað ávöxtun og hvað getur valdið tapi og hvort að framangreind lýsing á fyrirhuguðum fjárfesti fyrir afurðina falli að þér og þínu áhættuþoli og markmiðum.
3. Hver er áhættan og hvaða ávöxtun gæti ég fengið?
Hér koma fram áhættuvísir og árangurssviðsmyndir.
Áhættuvísirinn sýnir gildi á bilinu 1–7, hærra gildi endurspeglar meiri sveiflur. Gildið gengur út frá því að afurð sé haldið yfir ráðlagðan fjárfestingartíma. Áhættuvísirinn endurspeglar ekki allar áhættur á helstu áhættuþáttum mögulegt hámarkstap fjárfestingar og viðeigandi sviðsmyndir um mögulega þróun afurðarinnar.
Skoðaðu hversu miklu þú gætir tapað og hvort þú gætir þurft að leggja fram meira fé en upphaflega fjárfestingu.
Árangurssviðsmyndir sýna mögulega ávöxtun út frá fjórum mismunandi forsendum í krónum talið og meðalávöxtun í prósentum yfir nánar tiltekin tímabil. Árangurssviðsmyndirnar eru:
- hagstæð sviðsmynd
- hófleg sviðsmynd
- óhagstæð sviðsmynd
- álagssviðsmynd
Hvað gerist ef framleiðandinn getur ekki greitt út?
Kynntu þér hvort og að hvaða marki fjárfesting þín nýtur verndar, til dæmis vegna tryggingakerfis eða annarra úrræða.
Hver er kostnaðurinn?
Skoðaðu heildarkostnað sem þú þarft að bera ef þú fjárfestir í afurðinni, og áhrif kostnaðar á ávöxtun, meðal annars með stöðluðum framsetningum svo neytendur geti borið afurðir saman.
Kostnaður dregur úr ávöxtun þinni. Skoðaðu bæði kostnað í krónum og áhrif hans á árlega ávöxtun, ásamt gjöldum við kaup, á eignarhaldstímanum og við sölu.
Hér skal einnig vera fyrirvari um að söluaðili eða ráðgjafi getur innheimt viðbótargjöld sem koma ekki fram í lykilupplýsingaskjalinu fyrir sína þjónustu. Sá aðili á þá að upplýsa þig um þann kostnað. Ef framleiðandi vörunnar er viss um að slík gjöld séu ekki tekin þá er þessum fyrirvara sleppt.
Þú getur óskað eftir skriflegum upplýsingum um þann kostnað við þá fjárfestingu og þjónustu sem þér er boðin.
Hve lengi á ég að fjárfestaeiga afurðina og get ég tekið fé út snemma?
Kannaðu hvort að ráðlagður fjárfestingartími afurðarinnar sé í samræmi við hvenær þú þarft að nota peningana.
Athugaðu hvort hægt sé að selja fyrir ráðlagðan fjárfestingartíma, hversu langan tíma það tekur og hvort því fylgi aukinn kostnaður eða önnur óhagstæð áhrif. Þrátt fyrir að þú getir selt þýðir það ekki að þú fáir alla upphaflegu fjárfestinguna til baka.
Hvernig ber ég fram kvörtun?
Undir þessum lið lykilupplýsingaskjalsins eiga að koma fram upplýsingar um hvernig og hvert fjárfestir getur beint kvörtun ef upp kemur vandamál tengt afurðinni eða þeim sem framleiðir hana, veitir ráðgjöf um hana eða selur hana.
Athugaðu að framleiðanda ber að svara kvörtun skriflega eða með sambærilegum hætti og hún barst innan 28 daga. Ef kvörtun þín er ekki tekin að fullu til greina ber að veita þér rökstuðning fyrir þeirri ákvörðun og veita þér upplýsingar um hvaða réttarúrræði standa þér til boða.
Aðrar upplýsingar sem skipta máli
Hér skal vísa til viðbótarupplýsinga þar sem það á við, svo sem nánari skjala, fyrri ávöxtunar eða annarra upplýsinga sem reglurnar gera ráð fyrir.
Verðbréfasjóðir, sérhæfðir sjóðir og eininga- og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir skulu birta hlekk á vefsíðu eða tilvísun í skjal þar sem fyrri árangur eru aðgengilegar og veita upplýsingar um fjölda ára sem þær ná yfir.4
Slíkar afurðir og aðrar vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir eru opnar fyrir áskrift eiga jafnframt að birta og veita upplýsingar um hvar sé hægt að nálgast undangengnar árangurssviðsmyndir.
Fyrir opna sjóði og aðrar afurðir sem falla í flokk 2 samkvæmt PRIIPs-reglunum og enn er hægt að fjárfesta í skulu eldri útreikningar árangurssviðsmynda einnig birtir mánaðarlega. Hér á að koma fram hvar þú getur nálgast þá. Þeir sýna hvaða mögulegu útkomur sviðsmyndirnar sýndu á fyrri dagsetningum, en ekki hvaða ávöxtun fjárfestar fengu í raun.