Fjármálaeftirlitið framkvæmdi heildarathugun á starfsemi Lífeyrissjóðs bænda. Í kjölfar athugunarinnar ritaði Fjármálaeftirlitið skýrslu þar sem fram komu athugasemdir eftirlitsins og kröfur um úrbætur er skyldi vera lokið innan tiltekinna tímamarka. Í kjölfarið, eða þann 17. maí 2013, birti Fjármálaeftirlitið gagnsæistilkynningu þar sem gerð var grein fyrir helstu athugasemdum stofnunarinnar við starfsemi sjóðsins.
Eftirfylgni vegna heildarathugunar Fjármálaeftirlitsins hjá Lífeyrissjóði bænda 26. ágúst 2013
ATH: Þessi grein er frá 26. ágúst 2013 og er því orðin meira en 5 ára gömul.