Fyrsti kafli hér að neðan um dráttarvexti er
birtur samkvæmt 2. mgr. 10. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti
og verðtryggingu, og gilda dráttarvextir sem þar eru sýndir í sex mánuði í senn
frá 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Annar kafli um almenna vexti er birtur
samkvæmt 2. mgr. 10. gr., sbr. 4. og 8. gr. sömu laga og þriðji kafli
samkvæmt bráðabirgðaákvæði III í sömu lögum og gilda vextir samkvæmt II.
og III. kafla næsta almanaksmánuðinn eða uns næsta tilkynning birtist.
Vextir sem breytast eru merktir með stjörnu (*). Innan
sviga eru sýndir vextir fyrir breytingu.
Vextir alls á ári
I. Dráttarvextir af peningakröfum í krónum
f.o.m. 1. september 2004
1.
Grunnur
dráttarvaxta 1
5,75%
2.
Vanefndaálag
2
11,75%
3.
Dráttarvextir
3
17,5%
II. Almennir vextir
1.
Vextir
óverðtryggðra lána skv. 4. gr. 4
8,5%*
(8,0%)
2.
Vextir verðtryggðra lána skv. 4. gr.
4
5,4%
3.
Vextir af skaðabótakröfum
5
5,7%*
(5,3%)
III. Dráttarvextir af peningakröfum í erlendri mynt
6
1.
Bandaríkjadollurum
5,5%
2.
Sterlingspundum
8,0%* (7,5%)
3.
Dönskum
krónum
5,5%
4.
Norskum
krónum
5,5%
5.
Sænskum
krónum
5,5%
6.
Svissneskum
frönkum
5,0%
7.
Japönskum
jenum
5,0%
8.
Evrum 7
5,5%
Um leið og tilkynning þessi öðlast gildi 1.
september 2004, fellur úr gildi tilkynning nr. 7/2004 dags. 26. júlí 2004 um
dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Reykjavík, 23. ágúst
2004.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
[1] Grunnur dráttarvaxta eru gildandi vextir
algengustu skammtímalána Seðlabanka Íslands til lánastofnana, nú ávöxtun í
endurhverfum verðbréfakaupum Seðlabankans.
2 Vanefndaálag er ellefu
hundraðshlutar, nema um annað sé samið skv. 2. mgr. 6. gr. laganna.
Seðlabankanum er þó heimilt að ákveða annað vanefndaálag að lágmarki sjö
hundraðshlutar og að hámarki fimmtán hundraðshlutar.
3 Dráttarvextir eru samtala grunns
dráttarvaxta og vanefndaálags. Seðlabankinn skal birta dráttarvexti eigi skemur
en viku fyrir gildistökudaga dráttarvaxta sem eru 1. janúar og 1. júlí ár
hvert.
4 Almenna vexti sbr. 3. gr. laganna
skal því aðeins greiða af peningakröfu að það leiði af samningi, venju eða
lögum. Þegar hundraðshluti þeirra eða vaxtaviðmiðun er að öðru leyti ekki
tiltekin, skulu vextir vera á hverjum tíma jafnháir vöxtum sem Seðlabanki
Íslands ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum almennum óverðtryggðum
útlánum hjá lánastofnunum og birtir skv. 10. gr. laganna. Þar sem um verðtryggða
kröfu er að ræða skulu vextir vera jafnháir vöxtum sem Seðlabankinn ákveður með
hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum almennum verðtryggðum útlánum hjá
lánastofnunum og birtir skv. 10. gr. laganna.
Í bráðabirgðaákvæði I í lögum nr.
38/2001 segir: 'Nú segir í lánssamningi í íslenskum krónum, gerðum fyrir
gildistöku laga þessara, að vextir fram að gjalddaga skuli vera breytilegir í
samræmi við vegið meðaltal ársávöxtunar á nýjum almennum útlánum hjá
viðskiptabönkum og sparisjóðum, meðalútlánsvexti viðskiptabanka og sparisjóða
eða meðalútlánsvexti sem Seðlabanki Íslands birtir, eða vísað er með öðrum
almennum hætti til vaxta á markaði, og skulu þá vextir af þessum peningakröfum,
eftir gildistöku laganna, vera jafnháir vöxtum skv. 1. málsl. 4. gr. að
viðbættum 3,5% þegar um óverðtryggða peningakröfu er að ræða og jafnháir vöxtum
skv. 2. málsl. 4. gr. að viðbættum 2,5% þegar um verðtryggða peningakröfu er að
ræða.
Nú segir í lánssamningi í
íslenskum krónum, gerðum fyrir gildistöku laga þessara, að vextir fram að
gjalddaga skuli vera breytilegir í samræmi við hæstu lögleyfðu vexti á hverjum
tíma, hæstu vexti á markaðnum eða vísað er með öðrum almennum hætti til hæstu
vaxta á markaði og skulu þá vextir af þessum peningakröfum eftir gildistöku
laganna vera jafnháir vöxtum skv. 1. málsl. 4. gr. að viðbættum 4,5%, þegar um
óverðtryggða peningakröfu er að ræða og jafnháir vöxtum skv. 2. málsl. 4. gr. að
viðbættum 3,5% þegar um verðtryggða peningakröfu er að ræða.'
5 Vextir af kröfum um skaðabætur, sbr. 1.
mgr. 8. gr. laganna skulu á hverjum tíma vera jafnháir tveimur þriðju hlutum
vaxta sem Seðlabanki Íslands ákveður og birtir skv. 1. málslið 4. gr.
laganna.
6 Í bráðabirgðaákvæði III í lögum
nr. 38/2001 segir: 'Nú segir í lánssamningi í erlendum gjaldmiðli, gerðum fyrir
gildistöku laga þessara, að við vanskil reiknist hæstu lögleyfðu dráttarvextir
eins og þeir eru á hverjum tíma, dráttarvextir samkvæmt ákvörðun Seðlabanka
Íslands eða dráttarvextir samkvæmt vaxtalögum, eða vísað er með öðrum hætti til
dráttarvaxta sem Seðlabankinn ákvað skv. 11. gr. laga nr. 25/1987, og skulu þá
dráttarvextir þessir vera ákvarðaðir með sama hætti næstu fimm árin eftir
gildistöku laga þessara, en að þeim tíma loknum skulu þeir vera jafnháir þeim
dráttarvöxtum í hlutaðeigandi gjaldmiðli sem síðast voru auglýstir af
Seðlabankanum í Lögbirtingablaði fimm árum eftir gildistöku
laganna.'
7 Sömu vextir gilda af peningakröfum
í myntum aðildarlanda myntbandalags Evrópu (EMU) og í
evrum.
Nr. 8/2004