Gjaldmiðlavogir sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2007. Endurskoðun fór síðast fram í desember 2007. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2008 til næstu endurskoðunar að ári.
Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu utanríkisviðskipta þjóðarinnar, bæði vöru- og þjónustuviðskipta.
Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:
Þröng vöruskiptavog (A) og þröng viðskiptavog (C) :
Rússnesk rúbla bætist við
Víð vöruskiptavog (B) og víð viðskiptavog (C):
Tævanskur dalur fellur út
Súrinamskur dalur fellur út
Aðrar breytingar eru þær helstar að vægi evru eykst nokkuð og vægi Bandaríkjadals minnkar. Seðlabankinn mun hætta birtingu vísitölu gengisskráningar með grunn 31.12 1991 í árslok 2008, en gjaldmiðlavog vísitölunnar hefur ekki verið breytt frá júlí 2005.