Málstofa verður haldin á morgun, fimmtudaginn 11. júní, kl. 15:00 um stöðu íslenskra heimila í kjölfar bankahrunsins. Málstofan fer fram í fundarsal Seðlabankans, Sölvhóli. Gengið er inn frá Arnarhóli.
Frummælendur eru Karen Á. Vignisdóttir og Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hagfræðingar í Seðlabanka Íslands.
Erindi þeirra fjallar um stöðu íslenskra heimila í kjölfar bankahrunsins. Þar verða kynntar frekari niðurstöður greiningar Seðlabanka Íslands á þessu viðfangsefni. Meðal annars verður leitast við að svara eftirfarandi spurningum:
- Hversu stór hluti heimila er með þunga greiðslubyrði í hlutfalli við tekjur, býr við neikvæða eiginfjárstöðu eða hefur orðið fyrir verulegum tekjumissi vegna atvinnuleysis?
- Hvernig dreifist greiðslubyrði íbúða-, bíla- og yfirdráttarlána eftir tekjuhópum?
- Hve stór hluti heildarskulda er borinn af heimilum með viðráðanlega greiðslubyrði?
- Er tekjudreifing heimila með erlend lán frábrugðin heimilum með krónulán?
- Hver er greiðslubyrði og skuldastaða barnafjölskyldna?
- Hver er greiðslubyrði og skuldastaða atvinnulausra?
- Hvernig hafa tekjur breyst milli ára?
- Hve stór hluti heimila er með meiri skuldir vegna íbúða-, bíla- og yfirdráttarlána en nemur eignum þeirra í húsnæði og fjárhagslegum auði?
Sjá nánar um málstofur: Málstofur Seðlabanka Íslands
Sjá fyrri tilkynningar um gögn er varða efnið: