Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 9/2009

ATH: Þessi grein er frá 21. október 2009 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Engin breyting er á vöxtum frá síðustu vaxtaákvörðun sem tók gildi 1. október sl. Frá 1. nóvember nk. verða vextir því eftirfarandi. Vextir verðtryggðra lána 4,9%. Vextir af óverðtryggðum lánum 10,5% og vextir af skaðabótakröfum 7,0%.

Dráttarvextir eru einnig óbreyttir frá síðustu vaxtaákvörðun og verða 19% fyrir tímabilið 1. nóvember til 30. nóvember 2009.