Gjaldmiðlavogir sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2008. Endurskoðun fór síðast fram í desember 2008. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2010 til næstu endurskoðunar að ári.
Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu utanríkisviðskipta þjóðarinnar, bæði vöru- og þjónustuviðskipta.
Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:
Þröng vöruskiptavog (A) og þröng viðskiptavog (C) :
Ástralskur dollar bætist við
Víð vöruskiptavog (B) og víð viðskiptavog (C):
Ástralskur dollar bætist við
Tyrknesk líra fellur út
Aðrar breytingar eru þær helstar að vægi Bandaríkjadals minnkar og vægi norsku krónunnar eykst nokkuð.