Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 5/2010

ATH: Þessi grein er frá 20. apríl 2010 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Engin breyting er á vöxtum frá síðustu vaxtaákvörðun sem tók gildi 1. apríl síðastliðinn.

Frá og með 1. maí nk. verða vextir því eftirfarandi:

• Vextir verðtryggðra lána 4,8 %.

• Vextir af óverðtryggðum lánum 8,5%

• Vextir af skaðabótakröfum 5,7%.

Dráttarvextir eru einnig óbreyttir frá síðustu vaxtaákvörðun og verða áfram 16,0% fyrir tímabilið 1. maí til 31. maí 2010. 

Sjá nánar: