Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2010 22. október 2010

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Vextir fyrir tímabilið 1. - 30. nóvember 2010 verða sem hér segir:

• Vextir óverðtryggðra lána lækka í 6,30% - (voru 6,75%).

• Vextir af skaðabótakröfum lækka í 4,20% - (voru 4,50%).

• Vextir af verðtryggðum lánum haldast óbreyttir og verða áfram 4,8%.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu sem birt var í lok september sl. Dráttarvextir eru því óbreyttir og verða áfram 13,25% fyrir tímabilið 1. - 30. nóvember 2010.

Sjá nánar: