Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 13/2010

ATH: Þessi grein er frá 17. desember 2010 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. janúar 2011 verða vextir sem hér segir:

• Vextir af óverðtryggðum lánum lækka í 5,55% - (voru 5,75%).

• Vextir verðtryggðra lána haldast óbreyttir og verða áfram 4,70%.

• Vextir af skaðabótakröfum lækka í 3,70% - (voru 3,85%).

Grunnur dráttarvaxta lækkaði um eina prósentu við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands hinn 8. desember sl. og því lækka dráttarvextir úr 12,50% í 11,50% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2011.