Næstkomandi þriðjudag verður haldin málstofa um mótun framtíðarstefnu í peningamálum. Málstofan hefst kl. 15:00 í sal HT-102 í Háskóla Íslands. Frummælendur verða Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, Friðrik Már Baldursson prófessor og Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur.
Gert er ráð fyrir að málstofan standi í tvær klukkustundir. Það er efnahags- og viðskiptaráðuneytið, í samvinnu við Seðlabanka Íslands og Háskóla Íslands, sem efnir til þessarar málstofu.
Málstofan er öllum opin.
Sjá hér nánari tímasetningar á dagskránni:
15:00 Þórólfur Matthíasson prófessor, forseti Hagfræðideildar, setur málstofuna.
15:05 Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur S.Í.: Peningastefna eftir höft.
15:30 Friðrik Már Baldursson prófessor: Valkostir í peningamálum.
15:45 Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur: Þjóðhagsvarúð, er það lausnarorðið?
16:00 Almennar umræður.
Fundarstjóri: Björn Rúnar Guðmundsson, skrifstofustjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneyti.