Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2011 20. desember 2011

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2011 dags 21. nóvember sl. Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 11,75% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2012. Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 31. janúar 2012.

Vextir óverðtryggðra útlána 5,40% - (voru 5,25%)

Vextir verðtryggðra útlána 3,90% - (óbreyttir)

Vextir af skaðabótakröfum 3,60% - (voru 3,50%)