Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 7/2012 23. júlí 2012

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 6/2012 dagsettri 18. júní sl.

Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða því áfram 12,75% fyrir tímabilið 1. - 31. ágúst 2012.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. ágúst 2012:

• Vextir óverðtryggðra útlána hækka í 6,40% - (voru 6,15%)

• Vextir verðtryggðra útlána haldast óbreyttir 3,75%

• Vextir af skaðabótakröfum hækka í 4,27% - (voru 4,10%)