Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2012

ATH: Þessi grein er frá 21. nóvember 2012 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hækkaði um 0,25 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands hinn 14. nóvember sl. Dráttarvextir hækka því í kjölfarið að sama skapi um 0,25 prósentur og verða 13,00% frá og með 1. desember 2012.

Vextir af peningakröfum fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2012 eru óbreyttir og verða sem hér segir:

• Vextir óverðtryggðra útlána 6,40%

• Vextir verðtryggðra útlána 3,75%

• Vextir af skaðabótakröfum 4,27%