Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2012

ATH: Þessi grein er frá 19. desember 2012 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu nr. 11/2012 dagsettri 17. nóvember sl. um dráttarvexti og vexti af peningakröfum

Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,00% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2013.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. janúar 2013:

• Vextir óverðtryggðra útlána hækka í 6,75% - (voru 6,40%)

• Vextir verðtryggðra útlána haldast óbreyttir 3,75%

• Vextir af skaðabótakröfum hækka í 4,50% - (voru 4,27%)