Meginmál

Lækkun lágmarksfjárhæða í gjaldeyrisútboðum

ATH: Þessi grein er frá 7. febrúar 2013 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í ljósi reynslu af framkvæmd gjaldeyrisútboða Seðlabankans og með tilliti til opinberrar umræðu að undanförnu um lágmarksfjárhæðir í útboðunum hefur verið ákveðið að lækka fjárhæðirnar í næstu útboðum sem fram munu fara 19. mars næst komandi. 

Þannig mun lágmarksfjárhæð til þátttöku í útboðshluta fjárfestingarleiðarinnar verða lækkuð um helming eða úr EUR 50.000 í EUR 25.000. Lágmarksfjárhæð til þátttöku í ríkisverðbréfaleiðinni verður lækkuð um 9/10 eða úr EUR 100.000 í EUR 10.000.

Þessi breyting mun gefa fleiri fjárfestum tækifæri til að nýta sér útboðsleiðirnar.