Föstudaginn 8. febrúar kl. 15:00 verður málstofan „Viðbrögð við bankahruninu á Íslandi: var til betri leið?“ haldin í fundarsal Seðlabankans, Sölvhóli. Frummælendur verða Þorsteinn Þorgeirsson og Paul van den Noord og verður fyrirlesturinn á ensku.
Bankahrunið á Íslandi í október 2008 var eitt það stærsta í nútíma fjármálasögu. Ísland var jafnframt fyrsta landið til að lenda í fjármálakreppu sem hófst árið 2006 en einnig það fyrsta til að byrja að reisa sig við eftir hrunið. Viðbrögð stjórnvalda við hruninu, með aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og nágrannaríkja, áttu þátt í að takmarka skaðann og búa í haginn fyrir endurreisn efnahagslífsins. Í þessari málstofu munu Þorsteinn Þorgeirsson, ráðgjafi seðlabankastjóra, og Paul van den Noord, ráðgjafi aðalhagfræðings og aðstoðarframkvæmdastjóra OECD, kynna niðurstöður rannsókna á því hvaða áhrif það hefði haft ef stjórnvöld hefðu gripið til annarra úrræða til að bregðast við hruninu. Fjórar mögulegar sviðsmyndir með keyrslum í tveimur samverkandi þjóðhagslíkönum verða skoðaðar og áhrif metin fyrir opinber fjármál, hagvöxt, atvinnuleysi og aðrar hagstærðir á tímabilinu 2009-2025 hefðu stjórnvöld ákveðið að:
1) beita hagvaxtarhvetjandi fjármálastjórn hins opinbera,
2) láta krónuna falla án þess að grípa til fjármagnshafta,
3) greiða vaxtakostnað af Icesave-samningnum eins og upphaflega var gert ráð fyrir, eða
4) bjarga íslensku bönkunum með hliðsjón af írsku leiðinni.
Niðurstöðurnar verða bornar saman við þá leið sem farin var.