Meginmál

Myndbandsefni vegna útgáfu á tíu þúsund króna seðli

ATH: Þessi grein er frá 31. október 2013 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Myndbandsefni vegna útgáfu nýs tíu þúsund króna seðils er nú aðgengilegt hér á vef Seðlabanka Íslands.

Hér er lýst því ferli sem á sér stað þegar tíu þúsund króna seðlar fara í umferð frá Seðlabankanum til þeirra fjármálastofnana sem anna eftirspurn eftir seðlum frá almenningi. Jafnframt er tíu þúsund króna seðlinum lýst. Þulur er Hrafnhildur Ýr Bernharðsdóttir.

Hér er fjallað um ástæður þess að verið er að setja nýjan tíu þúsund króna seðil í umferð, öryggisatriði seðla og seðlanotkun hér á landi í samanburði við nágrannalöndin. Spyrjandi er Helena Pálsdóttir.