Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2013 21. nóvember 2013

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2013 sem útgefin var 16. október sl.

Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,00% fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2013.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2013;

• Vextir óverðtryggðra útlána 6,75% - (óbreyttir)

• Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)

• Vextir af skaðabótakröfum 4,50% - (óbreyttir)