Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 1/2014.

ATH: Þessi grein er frá 21. janúar 2014 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 13/2013 sem útgefin var 13. desember sl.

Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,00% fyrir tímabilið 1. – 28. febrúar 2014.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 28. febrúar 2014;

• Vextir óverðtryggðra útlána 6,75% - (óbreyttir)

• Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)

• Vextir af skaðabótakröfum 4,50% - (óbreyttir)