Meginmál

Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á fjórða ársfjórðungi 2013

ATH: Þessi grein er frá 3. mars 2014 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2013 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Viðskiptajöfnuður mældist hagstæður um 11,1 ma.kr. á ársfjórðungnum samanborið við 54,6 ma.kr. fjórðunginn á undan. Afgangur á vöruskiptum við útlönd nam 23,9 ma.kr. en þjónustujöfnuður var neikvæður um 3,6 ma.kr. Jöfnuður þáttatekna mældist neikvæður um 9,1 ma.kr. Viðskiptajöfnuður án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var hagstæður um 20,1 ma.kr. samanborið við 63,2 ma.kr. fjórðunginn á undan.

Sjá hér fréttina í heild í pdf-skjali:

Sjá hér einnig frétt um undirliggjandi erlenda stöðu:

Undirliggjandi erlend staða þjóðarbúsins í lok þriðja ársfjórðungs 2013

Nr. 6/20143. mars 2014