Var bóla á húsnæðismarkaðnum 2007?
Þriðjudaginn 14. október klukkan 15:00 verður málstofa um ofangreint efni haldin í fundarherbergi Seðlabanka Íslands, Sölvhóli.
Lúðvík Elíasson, hagfræðingur á fjármálastöðugleikasviði Seðlabankans, mun fjalla um efnið.
Lúðvík mun fjalla um niðurstöður úr rannsókn þar sem líkan af húsnæðismarkaðnum sem hann og Þórarins G. Péturssonar aðalhagfræðingur Seðlabankans mátu á árinu 2004 er endurmetið með gögnum sem ná yfir þensluna á markaðnum 2004 til 2007 og hrunið sem fylgdi í kjölfarið. Því er velt upp hvort fasteignamarkaðurinn á Íslandi hafi á þessum árum sýnt einkenni eignaverðsbólu. Sýnt er að tiltölulega litlar endurbætur á líkaninu duga til þess að skýra að mestu þá þróun sem varð á markaðnum fram að falli bankanna.