Meginmál

Peningamálafundur Viðskiptaráðs Íslands

ATH: Þessi grein er frá 5. nóvember 2014 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri er aðalræðumaður á árlegum morgunverðarfundi Viðskiptaráðs Íslands um peningamál sem fer fram á morgun, fimmtudaginn 6. nóvember. Á fundinum fer seðlabankastjóri yfir stöðu og horfur í efnahagsmálum og helstu forsendur þess að lánshæfismat ríkissjóðs geti batnað á komandi árum.

Morgunverðarfundur Viðskiptaráðs um peningamálin hefst klukkan 8:00 fimmtudaginn 6. nóvember. Fundurinn er á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.