Meginmál

Starfsheimildir fjármálafyrirtækja aðgengilegar á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins

ATH: Þessi grein er frá 12. nóvember 2014 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Fjármálaeftirlitið hefur gert starfsheimildir fjármálafyrirtækja aðgengilegar á heimasíðu stofnunarinnar, en þær má finna í skjali undir liðnum „Eftirlitsstarfsemi“ og þar undir „Starfsleyfi“.

Ef fjármálafyrirtæki telur að starfsheimildir fyrirtækisins samkvæmt skjalinu endurspegli ekki starfsleyfi þess, er óskað eftir að Fjármálaeftirlitið verði upplýst um það.

Öllum fyrirspurnum og/eða athugasemdum skal beina til Helgu Rutar Eysteinsdóttur, helga@fme.is.