Meginmál

Ársfundur Seðlabanka Íslands 2015

ATH: Þessi grein er frá 26. mars 2015 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í dag verður ársfundur Seðlabanka Íslands haldinn. Þar verða reikningar bankans lagðir fram en auk þess munu Jón Helgi Egilsson, formaður bankaráðs, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Már Guðmundsson seðlabankastjóri flytja ræður. Ársskýrsla bankans fyrir árið 2014, sem inniheldur reikningana, verður birt á vef bankans eftir klukkan 16 í dag ásamt þeim ræðum sem fluttar verða á ársfundinum.

Hér má skoða ársskýrslur síðustu ára: Ársskýrsla Seðlabanka Íslands.