Meginmál

Undirliggjandi erlend staða þjóðarbúsins

ATH: Þessi grein er frá 2. september 2015 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Hrein erlend staða við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2015 var neikvæð um 7.665 ma.kr. eða 365% af vergri landsframleiðslu. Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð var staðan aftur á móti jákvæð um 114 ma.kr. eða 5,4% af vergri landsframleiðslu. Slit innlánsstofnana í slitameðferð, miðað við núverandi stöðu og bókfært virði eigna, hafa neikvæð áhrif á hreinu erlendu stöðuna sem nemur 806 ma.kr. eða um 38% af vergri landsframleiðslu.

Undirliggjandi erlend staða er því metin neikvæð um 691 ma.kr. eða 33% af áætlaðri vergri landsframleiðslu í lok annars ársfjórðungs 2015.