Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2015 21. september 2015

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 08/2015 útgefinni 20. ágúst sl.

Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,25% fyrir tímabilið 1. – 31. október 2015.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast aftur á móti og verða því sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. október 2015;

  • Vextir óverðtryggðra útlána 6,60% - (voru 6,10%)

  • Vextir verðtryggðra útlána 3,65% - (óbreyttir)

  • Vextir af skaðabótakröfum 4,40% - (voru 4,07%)