Meginmál

Ritið Fjármálainnviðir 2015 kemur út í dag

ATH: Þessi grein er frá 25. nóvember 2015 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í dag klukkan 16:00 kemur út ritið Fjármálainnviðir 2015, en þar er til umfjöllunar staða og þróun mála á vettvangi greiðslumiðlunar. Í ritinu er fjallað um rekstur eigin millibankakerfa Seðlabanka Íslands og yfirsýnar- og reiðufjárhlutverk hans. Enn fremur er fjallað um nýja og væntanlega löggjöf, mikilvægi áhættustýringar, ekki síst m.t.t. rekstraráhættu, mikilvæga þjónustuveitendur og fleira.

Fyrri útgáfur Fjármálainnviða má nálgast hér.