Meginmál

Útgáfudagar fyrir lánshæfismat ríkissjóðs 2016

ATH: Þessi grein er frá 11. janúar 2016 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Matsfyrirtækjunum Standard & Poors og Fitch er gert að birta dagsetningar fyrir útgáfu á lánshæfismati aðildarríkja Evrópusambandsins, samanber ESB reglugerð númer 462/2013. Reglugerðin miðar að því meðal annars að auka gagnsæi í starfsemi matsfyrirtækja og auka ábyrgð matsfyrirtækjanna. Það hefur sýnt sig að lánshæfismat getur haft mikil áhrif á lánskjör sem ríkissjóðir aðildarríkja Evrópusambandsins njóta og því talið æskilegt að reglulegar tilkynningar m.a. um breytingar í þeim efnum séu í farvegi. Þar sem aðalgreinandi Moody‘s er staðsettur í ríki utan Evrópusambandsins er ekki gerð krafa til þess að fyrirtækið birti áætlun fyrir árið.

Reglugerðin gildir einnig fyrir ríki á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en hún ásamt nokkrum nýjum reglum um fjármálaeftirlit og fleira (sbr. t.d. ESB reglugerð númer 1095/2010) hefur að vísu ekki verið formlega innleidd í EES-ríkjunum.

Birtingaráætlunin er alfarið á ábyrgð matsfyrirtækjanna sjálfra.

Matsfyrirtækin hafa birt dagsetningar 2016 fyrir Ísland sem hér segir:

Matsfyrirtæki

Dagsetning

 

  

 S&P/Fitch Ratings

    15. janúar

S&P/Fitch Ratings

 15. júlí