Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2016 22. júní 2016

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Engin breyting hefur orðið á grunni dráttarvaxta frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2016 er gefin var út 19. maí sl. þar sem að stýrivextir hafa ekkert breyst síðan þá. Dráttarvextir verða því óbreyttir 13,50% fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2016.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2016;

• Vextir óverðtryggðra útlána 7,05%

• Vextir verðtryggðra útlána 3,65%

• Vextir af skaðabótakröfum 4,70%