Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2016 20. október 2016

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 09/2016 dagsett 16. september sl.

Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,00% fyrir tímabilið 1. - 30. nóvember 2016.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða áfram tímabilið 1. – 30. nóvember 2016 sem hér segir:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 6,55%

• Vextir verðtryggðra útlána verða 3,65%

• Vextir af skaðabótakröfum verða 4,37%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2016