Matsfyrirtækjunum Standard & Poor‘s, Moody´s Ratings og Fitch Ratings er gert að birta dagsetningar fyrir útgáfu á uppfærslu á lánshæfismati aðildarríkja Evrópusambandsins, samanber ESB reglugerð númer 462/2013 (CRA3). Reglugerðin miðar að því meðal annars að auka gagnsæi í starfsemi matsfyrirtækja og auka ábyrgð matsfyrirtækjanna. Það hefur sýnt sig að lánshæfismat getur haft mikil áhrif á lánskjör sem ríkissjóðir aðildarríkja Evrópusambandsins njóta og því talið æskilegt að reglulegar tilkynningar m.a. um breytingar í þeim efnum séu í föstum farvegi. Þar sem aðalgreinandi Moody‘s fyrir ríkissjóð Íslands er staðsettur í ríki utan Evrópusambandsins er ekki gerð krafa til þess að fyrirtækið birti áætlun fyrir árið.
Reglugerðin gildir einnig fyrir ríki á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en hún ásamt nokkrum nýjum reglum um fjármálaeftirlit og fleira (sbr. t.d. ESB reglugerð númer 1095/2010) hefur að vísu ekki verið formlega innleidd í EES-ríkjunum.
Birtingaráætlunin er alfarið á ábyrgð matsfyrirtækjanna sjálfra.
Matsfyrirtækin hafa birt dagsetningar 2017 fyrir Ísland sem hér segir:
Matsfyrirtæki
Dagsetning
Dagsetning
Dagsetning
Standard & Poor's
13. janúar
30. júní
22. desember
Fitch Ratings
13. janúar
7. júlí
8. desember