Meginmál

Fundur fjármálastöðugleikaráðs

ATH: Þessi grein er frá 27. júní 2017 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Fjármálastöðugleikaráð kom saman þriðjudaginn 20. júní sl. í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Fjallað var um áhættur í fjármálakerfinu og horfur í þjóðarbúskapnum.

Ákveðið var að beina tilmælum til Fjármálaeftirlitsins um að halda sveiflujöfnunarauka á innlendar áhættuskuldbindingar allra fjármálafyrirtækja óbreyttum í 1,25%. Fjármálasveiflan hefur risið álíka hratt og áætlað var á síðasta fundi fjármálastöðugleikaráðs. Haldi fjármálasveiflan áfram að rísa má vænta þess að fjármálastöðugleikaráð leggi til að uppbyggingu sveiflujöfnunaraukans verði haldið áfram á næstu misserum.

Næsti fundur fjármálastöðugleikaráðs verður haldinn 6. október nk.

Nánari upplýsingar um fundinn er að finna á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins.