Meginmál

Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis

ATH: Þessi grein er frá 19. janúar 2018 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis sem fjallar um störf nefndarinnar á seinni hluta ársins 2017 hefur verið birt á vef bankans.

Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Lögin kveða á um að peningastefnunefnd haldi fundi að minnsta kosti átta sinnum á ári. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið fjóra reglulega fundi, og var síðasta vaxtaákvörðun kynnt 13. desember. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá júlí til desember 2017.

Fyrri skýrslur um störf peningastefnunefndar eru hér.