Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 02/2018 20. febrúar 2018

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 01/2018 dags 16. janúar sl. þar sem að engin breyting hefur verið á meginvöxtum (stýrivöxtum) síðan þá. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru lán gegn veði, er því óbreyttur 5,00%.

Dráttarvextir eru þar að leiðandi einnig óbreyttir og verða því áfram 12,00% fyrir tímabilið 1. - 31. mars 2018.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. mars 2018:

• Vextir óverðtryggðra útlána 5,60%

• Vextir verðtryggðra útlána 3,65%

• Vextir af skaðabótakröfum 3,73%