Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2018

ATH: Þessi grein er frá 20. september 2018 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 08/2018 dags. 20. ágúst sl. þar sem engin breyting hefur verið á meginvöxtum (stýrivöxtum) síðan þá. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir, sem eru lán gegn veði í verðbréfum, er því óbreyttur 5,00%.

Dráttarvextir eru þar að leiðandi einnig óbreyttir og verða því áfram 12,00% fyrir tímabilið 1. - 31. október 2018.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. október 2018:

• Vextir óverðtryggðra útlána 5,75%

• Vextir verðtryggðra útlána 3,65%

• Vextir af skaðabótakröfum 3,83%