Skipulagi upplýsingatæknimála í Seðlabanka Íslands hefur verið breytt og stofnað nýtt svið upplýsingatækni. Áður var upplýsingatækniþjónustu sinnt á rekstrarsviði bankans. Upplýsingatæknisvið sinnir þjónustu á sviði tölvumála, svo sem er varðar vélbúnað, hugbúnað, innleiðingu kerfa, gagnavinnslu, prófanir og eftirlit. Logi Ragnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hins nýja upplýsingatæknisviðs til eins árs. Logi var áður framkvæmdastjóri Greiðsluveitunnar, félags í eigu Seðlabanka Íslands, en hann verður í tímabundnu leyfi frá því starfi.
Logi Ragnarsson framkvæmdastjóri nýs upplýsingatæknisviðs Seðlabanka Íslands
ATH: Þessi grein er frá 11. október 2018 og er því orðin meira en 5 ára gömul.