Fara beint í Meginmál

Endurskoðun á gjaldmiðlavogum 2018

ATH: Þessi grein er frá 30. desember 2018 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Gjaldmiðlavogum sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2017. Endurskoðun fór síðast fram í upphafi árs 2018. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2019 til næstu endurskoðunar að ári.

Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu vöru- og þjónustuviðskipta þjóðarinnar. Val á gjaldmiðlum í vogir byggist á 3 ára meðalhlutdeild ríkja í vöru- og þjónustuviðskiptum landsins.

Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:

Þröng vöruskiptavog (A), þröng þjónustuvog (C) og þröng viðskiptavog (E):

Ástralskur dalur bætist við

Rússnesk rúbbla fellur út

Víð vöruskiptavog (B), víð þjónustuvog (D) og víð viðskiptavog (F):

Suðurkóreskt vonn bætist við

Nígerísk næra fellur út

Í vöruviðskiptavogum dregur töluvert úr vægi Bandaríkjadals milli ára auk þess sem vægi breska pundsins minnkar nokkuð. Á móti eykst vægi brasilíska ríalsins og sádi-arabíska ríalsins. Helstu breytingar á þjónustuvog eru aukið vægi evrunnar en mest dregur úr vægi svissneska frankans og Bandaríkjadals auk þess sem vægi norsku krónunnar og sádi-arabíska ríalsins minnkar nokkuð. Viðskiptavogirnar endurspegla þessar breytingar að mestu leyti. Mest dregur úr vægi Bandaríkjadals milli ára auk þess sem vægi svissneska frankans minnkar töluvert, en vægi brasilíska ríalsins, evrunnar og sádi-arabíska ríalsins eykst.