Meginmál

Seðlabanki Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals

ATH: Þessi grein er frá 11. janúar 2019 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabanki Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals og veittur er af Seðlabanka Íslands.

Tilgangur styrksins, sem veittur er árlega, er að styðja framtak sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.

Styrkfjárhæðin nemur þremur milljónum króna og verður henni úthlutað í apríl eða maí 2019. Heimilt er að skipta fjárhæðinni á milli tveggja eða fleiri umsækjenda.

Umsóknir skulu sendar skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands eigi síðar en 8. mars 2019.

Úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð eru aðgengileg hér: Menningarstyrkur og í afgreiðslu bankans á Kalkofnsvegi 1.

Nánari upplýsingar veitir Hrafnhildur Ýr Bernharðsdóttir á skrifstofu seðlabankastjóra í síma 569 9600.