Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (Fjármálaeftirlitið)hefur sent dreifibréf til tilkynningarskyldra aðila skv. a-k-liðum 2. gr. laga nr.140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.Tilefnið eryfirlýsing Evrópska bankaeftirlitsins (EBA) um aðlögun eftirlits og áhættumatsvegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka í ljósi áhrifa COVID-19.
Ídreifibréfinu er meðal annars lögð áhersla á mikilvægi þess aðtilkynningarskyldir aðilar haldi áfram, þrátt fyrir þær aðstæður sem nú eruuppi, að sinna aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka í þvískyni að standa vörð um trúverðugleika, stöðugleika og orðsporfjármálamarkaðarins. Þá beinir Fjármálaeftirlitið því til tilkynningarskyldraaðila á fjármálamarkaði að þeir leggi mat á hvort þær aðstæður sem nú eru uppigefi tilefni til að uppfæra áhættumat og þá jafnframt hvort aðlaga þurfiáhættumiðað eftirlit í takt við breyttar aðstæður.
Dreifibréfið í heild sinni erað finna hér: