Maíhefti Peningamála hefur verið birt hér á vef Seðlabanka Íslands. Í ritinu, sem gefið er út fjórum sinnum á ári, gerir Seðlabankinn grein fyrir horfum í efnahags- og peningamálum. Þá er í ritinu birt verðbólgu- og þjóðhagsspá ásamt ýtarlegri umfjöllun um þróun og horfur í efnahags- og peningamálum. Sú greining og sú spá sem birt er gegnir mikilvægu hlutverki við mótun peningastefnunnar hér á landi. Ritið er einnig gefið út á ensku undir heitinu Monetary Bulletin.
Maíhefti Peningamála komið út 20. maí 2020
ATH: Þessi grein er frá 20. maí 2020 og er því orðin meira en 5 ára gömul.