Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur tekið saman skýrslu með heildarniðurstöðum ársreikninga ársins 2019 hjá fjármálafyrirtækjum, þ.e. viðskiptabönkum, sparisjóðum, lánafyrirtækjum, verðbréfafyrirtækjum og rekstrarfélögum verðbréfasjóða. Í skýrslunni er einnig að finna upplýsingar um heildareignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða í rekstri einstakra rekstrarfélaga og heildareignir fagfjárfestasjóða í rekstri rekstrarfélaga og annarra rekstraraðila. Jafnframt er í skýrslunni að finna nánar tilteknar upplýsingar um greiðslustofnanir og rafeyrisfyrirtæki.
Heildarniðurstöður ársreikninga fjármálafyrirtækja o.fl. 2019 30. júní 2020
ATH: Þessi grein er frá 30. júní 2020 og er því orðin meira en 5 ára gömul.