Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði Frumtak Ventures ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 6. janúar 2021, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.
Frumtak Ventures ehf. skráð sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða 8. janúar 2021
ATH: Þessi grein er frá 8. janúar 2021 og er því orðin meira en 5 ára gömul.